Tímarit Lögréttu

Tímarit Lögréttu company information, Employees & Contact Information

Tímarit Lögréttu er fræðirit þar sem birtar eru vandaðar ritrýndar fræðigreinar á sviði lögfræði. Ritinu er ætlað að þjóna bæði lögfræðingum og laganemum en ekki síður almenningi með umfjöllun um lögfræðileg álitaefni sem eru efst á baugi í samfélaginu hverju sinni. Einnig tekur tímaritið við stuttum óritrýndum greinum (hámark 3500 orð) sem fjalla um lögfræðileg málefni líðandi stundar; svo sem áhugaverða dóma, lagafrumvörp, bókadóma o.s.frv. Óritrýndar greinar þurfa þó að hljóta samþykki ritnefndar tímaritsins. Tímaritið veitir viðtöku greinum skrifuðum á íslensku og ensku. Tímarit Lögréttu kom fyrst út í árslok 2004 og hefur frá upphafi birt ritrýnt efni. Heimasíða Tímarits Lögréttu er sérstaklega hönnuð til að vera vettvangur vefútgáfu tímaritsins. Framvegis verður tímaritið einungis gefið út á rafrænu formi að undanskilinni útgáfu sérstaks afmælisrits vegna 20 ára afmælis lagadeildar Háskólans í Reykjavík og Lögréttu, félags laganema við Háskólann Í Reykjavík. Skilyrði þess að tekið sé við greinum til birtingar er að þeim sé skilað í samræmi við leiðbeiningarreglur fyrir höfunda. Ritrýni Tímarits Lögréttu er á grundvelli gagnkvæmrar leyndar (e. double blind). Þannig er tryggt að ritrýniferlið sé nafnlaust, þ.e. að ritrýnir og höfundar fái ekki upplýsingar hvor um annan. Ritstjóri tímaritsins er dr. Margrét Einarsdóttir, prófessor. Útgáfustjóri er Þórður Skúli Björgvinsson, laganemi. Ráðgjafarnefnd tímaritsins skipa þau Eiríkur Elís Þorláksson, dósent og fyrrv. deildarforseti lagadeildar, dr. Guðmundur Sigurðsson, prófessor og fyrrv. deildarforseti lagadeildar, dr. Gunnar Þór Pétursson, prófessor og deildarforseti lagadeildar og dr. Þórdís Ingadóttir, prófessor. Hafa má samband í gegnum tölvupóstföngin margreteinars@ru.is ritstjóra eða thordurb22@ru.is útgáfustjóra.

Company Details

Address
Reykjavik, 101, Is
Industry
Law Practice
NAICS
Offices of Lawyers
HQ
reykjavik
Looking for a particular Tímarit Lögréttu employee's phone or email?

Tímarit Lögréttu Questions

Free Chrome Extension

Find emails, phones & company data instantly

Find verified emails from LinkedIn profiles
Get direct phone numbers & mobile contacts
Access company data & employee information
Works directly on LinkedIn - no copy/paste needed
Get Chrome Extension - Free

Aero Online

Your AI prospecting assistant