KFUM og KFUK á Íslandi
Non-Profit Organizations
Reykjavik, Höfuðborgarsvæði, Is
5 employees
- Employees
- 5
KFUM og KFUK á Íslandi Overview
- Headquarters
- Reykjavik, Höfuðborgarsvæði, Is
- Website
- www.kfum.is
- Industry
- Non-Profit Organizations
- Employees
- 5
- Founded
- 1899
About KFUM og KFUK á Íslandi
KFUM og KFUK er kristileg æskulýðshreyfing sem hefur það að markmiði að stuðla að heilbrigði einstaklingsins til líkama sálar og anda. KFUM og KFUK stendur fyrir faglegu barna- og æskulýðsstarfi en félagið starfrækir fimm sumarbúðir og um 30 æskulýðsdeildir víðs vegar um landið, auk þess að standa fyrir leiðtogaþjálfun og fjölbreyttum viðburðum allt árið um kring. Aðferð Jesú Krists, að mæta hverri manneskju af umhyggju, kærleika og virðingu er í hávegum höfð í öllu starfi KFUM og KFUK. Á veturna fer fram barna- og unglingastarf í um 30 deildum víða um land sem halda fundi einu sinni í viku. Íþróttamót og hátíðir eru fastur liður í starfinu ásamt styttri og lengri vettvangsferðum. Á sumrin taka við sumarbúðir sem KFUM og KFUK reka á fimm stöðum á landinu og leikjanámskeið sem haldin eru í Reykjavík, Kópavogi og í Reykjanesbæ. Fullorðinsstarf er mikilvægur þáttur félagsstarfs KFUM og KFUK , samkomur, fræðandi og uppbyggilegir fundir, námskeiðahald, helgarsamverur í sumarbúðum félagsins og fleira. Leikskólinn Vinagarður er kristilegur leikskóli, staðsettur í Laugardalnum í Reykjavík. Leikskólinn er einkaskóli og rekinn af KFUM og KFUK á Íslandi. KFUM og KFUK tekur virkan þátt í Æskulýðsvettvangnum (ÆV) sem er samstarfsvettvangur Ungmennafélags Íslands, Bandalags íslenskra skáta, KFUM og KFUK á Íslandi og Slysavarnafélagsins Landsbjargar.
Compare Similar Companies to KFUM og KFUK á Íslandi
ENNEMM
Advertising Services
Heilsuvernd
Hospitals And Health Care
Birtingahúsið ehf
Advertising Services
Hvammsvik Hot Springs & Nature Resort
Travel Arrangements
KIWI - Digital Marketing Iceland
Advertising Services
Sahara Academy
Education
BEWI Iceland
Packaging And Containers Manufacturing
SYNIA
It Services And It Consulting
Hringvarmi
Agriculture, Construction, Mining Machinery Manufacturing
NIBA EHF
Entertainment Providers