Ég brenn fyrir því að skapa heilbrigða vinnustaði. Bakgrunnur minn liggur í því að tengja saman fólk & ferla með skilvirkni, virðingu og umhyggju að leiðarljósiHvað eru heilbrigðir vinnustaðir?? Fyrir mér eru það vinnustaðir sem bera umhyggju og virðingu fyrir starfsfólkinu sínu. Vinnustaðir þar sem starfsfólk fær tækifæri til að takast á við áskoranir og krefjandi verkefni en fer samt brosandi heim. Vinnustaðir þar sem jafnvægi ríkir í vinnuálagi og andrými til að stuðla að nýsköpun, umbótum & árangri.Hvernig skapa ég heilbrigða vinnustaði? Ég tryggi að starfsmenn upplifi: ◼️ Sjálfbært álagAð álag sé á þann máta að verkefnin séu viðráðanleg. Jafnvægi á milli þeirra krafna og þeirra úrræða/tíma sem starfsmenn hafa.◼️ Að hafa stjórn // sjálfræðiAð hafa stjórn á aðstæðunum og umboð til framkvæmda. Frelsi til þess að leysa úr verkefnum á sem bestan hátt og koma með nýjungar.◼️ Viðurkenning & umbunSnýr ekki bara að peningum heldur einnig að vera metin að verðleikum og upplifa það á vinnustaðnum. Aðrir kunna að meta störf þín og þú veist að þitt framlag skiptir máli◼️ TeymisvinnaSamstaðan og samvinnan í teyminu. Starfsmenn finna fyrir stuðningi og trausti.◼️ SanngirniSanngirni og að allir séu jafnir og fái jöfn tækifæri. Að maður finni fyrir virðingu og jafnrétti.◼️ Skýr gildi & mikilvægi starfsAf hverju er ég hér í vinnu? Hver er tilgangurinn og af hverju skiptir málefnið mig máli?Fyrir mér snýst þetta allt saman um að tengja saman fólk & ferla þvert á skipulagsheildir af virðingu, umhyggju og dassi af húmor 💛
Listed skills include Insurance, Project Management, Underwriting, Financial Analysis, and 21 others.