/Sys/Tur
Higher Education
Reykjavik, Höfuðborgarsvæði, Is
6 employees
- Employees
- 6
/Sys/Tur Overview
- Headquarters
- Reykjavik, Höfuðborgarsvæði, Is
- Website
- systur.ru.is
- Industry
- Higher Education
- Employees
- 6
- Founded
- 2013
- NAICS
-
Colleges, Universities, and Professional Schools
Keywords
About /Sys/Tur
/sys/tur er félag kvenna innan tölvunarfræðideildar Háskólans í Reykjavík. Félagið var stofnað haustið 2013 af Áslaugu Eiríksdóttur, Elísabetu Guðrúnar- og Jónsdóttur, Helgu Guðmundsdóttur og Ingibjörgu Ósk Jónsdóttur, nemendum við Háskólann í Reykjavík. Markmið /sys/tra í upphafi var að skapa öruggan vettvang fyrir stelpur til þess að ræða sín á milli án þess að óttast gagnrýni. Þegar /sys/tur voru stofnaðar var hlutfall kvenna 18% meðal nýnema. Haustið 2016 var hlutfall kvenna í tölvunarfræði rétt undir 30% meðal nýnema. Á fimm árum hefur starfsemi félagsins orðið meiri og fjölbreyttari. /sys/tur hafa lagt mikið upp úr því að vinna að stuðningsneti fyrir stelpur og að kynna stelpum fyrir tæknigreinum sem valkost fyrir bæði kynin. Einnig leggjum við áherslu á að hvetja stelpur áfram, að þær einblíni á kosti sína en ekki galla og hafi sjálfstraust til þess að vinna að því sem þær hafa ástríðu fyrir. Félagið leggur því áherslu á að kynna félagsmeðlimi fyrir starfi og reynslu kvenna úr tæknigeiranum og benda á fyrirmyndir. Reglulega eru haldnir viðburðir innan félagsins til þess að skapa grundvöll fyrir tengslamyndun meðal kvenna í tölvunarfræði. Einnig skipuleggja /sys/tur fræðslu með það markmið að efla sjálftraust stelpna í tæknilegum atriðum þannig að þær sýni frekar frumkvæði. Það mikilvægt að kynna fjölbreytileika tölvunarfræðinnar þannig fleiri sjái hana sem mögulega námsleið og því hafa /sys/tur verið að kynna tölvunarfræði utan veggja háskólans. Nafnið /sys/tur er vísun í skráarkerfi stýrikerfisins Linux og póstlistann Systers sem var stofnaður af Anitu Borg árið 1987 og var hugsaður sem tengslanet kvenna innan tæknigeirans. Til að byrja með voru 12 konur skráðar en nú hefur póstlistinn stækkað mikið og er orðinn að stærsta póstlistasamfélagi kvenna í tæknigeiranum um allan heim. Anita Borg var doktor í tölvunarfræði og var hún frumkvöðull í að efla og hvetja fleiri konur til að taka virkan þátt í tölvu- og tækniheiminum.
Compare Similar Companies to /Sys/Tur
Síminn
Telecommunications
Helix Health
Software Development
Elva
It Services And It Consulting
femHIRE
Human Resources Services
Leviosa
Software Development
Vertonet
Non-Profit Organizations
WomenTechIceland
Information Technology & Services
ADA konur
Software Development
Tvíund
Higher Education
Ada - Women and non-binary in Tech at the University of Iceland
Non-Profit Organizations